Yfirlit frétta

Viltu vinna á Klausturhólum?

Það vantar starfsfólk í umönnun aldraðra á hjúkrunumheimilinu Klausturhólum Það vantar starfsfólk í ræstingar á Klausturhólum í ágúst.

Ástarbrautin - Átaksverkefni

Leitum að bændum/einstaklingum/verktökum sem eru klárir í að aðstoða okkur við að fullgera "ÁSTARBRAUTINA", eða þann hluta stígsins sem er uppi á fjallsbrúninni.

Viltu leysa af á Kærabæ á Klaustri?

Laust er til umsóknar tímabundið starf á Heilsuleikskólanum Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri. Um er að ræða:Tímabundin afleysing 100 % starf, frá 03.ágúst 2021 til 01. nóvember 2022. Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingum til starfa á Heilsuleikskólann Kærabæ sem er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri. Heilsuleikskólinn Kæribær er tveggja deilda leikskóli með heilsdagsrými fyrir börn á aldrinum eins til sex ára.

Viltu verða leikskólakennari á Klaustri?

Leikskólakennara vantar í 100% starf í Heilsuleikskólann Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri. Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingum til starfa á Heilsuleikskólann Kærabæ sem er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri. Heilsuleikskólinn Kæribær er tveggja deilda leikskóli með heilsdagsrými fyrir börn á aldrinum eins til sex ára.

Hestaþing og firmakeppni Kóps 23. og 24. júlí 2021

Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps verður haldin á Sólvöllum í Landbroti föstudagskvöldið 23.júlí nk. kl. 19:00. Hestaþing Hestamannafélagsins Kóps verður haldið 24.júlí nk. á Sólvöllum í Landbroti.

Fundur Sveitarstjórnar Skaftárhrepps 15. júlí 2021 - beint streymi vefslóð

Fundarboð: 464. fundur Sveitarstjórnar Skaftárhrepps verður haldinn í fundaraðstöðu Kirkjubæjarstofu þekkingarseturs Klausturvegi 4, 2. hæð fimmtudaginn 15. júlí 2021, kl. 15:00.

Strandblakvöllur á Kirkjubæjarklaustri

Enn bætist við skemmtilegheitin á Klaustri. Fyrir utan Íþróttamiðstöðina er kominn strandblakvöllur sem er opinn öllum sem vilja.

Laust starf skólaritara við Kirkjubæjaskóla á Síðu

Umsóknarfrestur til og með 16. júlí 2021. Skólaritari er þátttakandi í uppeldisstarfi skóla og skal gegna starfi sínu samkvæmt þeim lögum og reglum sem sett hafa verið um starf grunnskóla. Hann skal vera nemendum og starfsfólki innan handar. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 865-7440 /netfang skolastjori@klaustur.is

Skipulagslýsing fyrir Suðurhálendið - umsagnarfrestur til 15. ágúst nk.

Sumarlokun skrifstofu Skaftárhrepps

Lokað verður frá 19. júlí - 9 ágúst 2021 á Skrifstofu Skaftárhrepps