Laust starf skólaritara við Kirkjubæjaskóla á Síðu

Kirkjubæjarskóli á Síðu verður 50 ára haustið 2021.
Kirkjubæjarskóli á Síðu verður 50 ára haustið 2021.

Skólaritari er þátttakandi í uppeldisstarfi skóla og skal gegna starfi sínu samkvæmt þeim lögum og reglum sem sett hafa verið um starf grunnskóla. Hann skal vera nemendum og starfsfólki innan handar. Skólaritari vinnur náið með skólastjóra. Um er að ræða hlutastarf og ráðning frá 16. ágúst 2021. Helstu hæfniskröfur:

  • Áhugi á börnum og skólastarfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Heiðarleiki,vinnusemi, stundvísi og reglusemi.
  • Góð íslensku-og enskukunnátta sem og í einu Norðurlandamáli
  • Góð tölvukunnátta m.a. word, excel og publisher.
  • Hreint sakavottorð

 

Umsóknarfrestur til og með 16. júlí 2021.

Frekari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 865-7440. Einnig má senda fyrirspurnir og/eða umsóknir ásamt ferilskrá og sakavottorði á netfangið skolastjori@klaustur.is