Viltu vinna á Klausturhólum?

Hjúkrunar- og dvalarheilmilið Klausturhólar eru á Kirkjubæjarklaustri
Hjúkrunar- og dvalarheilmilið Klausturhólar eru á Kirkjubæjarklaustri

Á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri vantar starfsmenn í umönnun, bæði tímabundið og til lengri tíma. Einnig vantar starfsfólk í ræstingar í ágúst  2021. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Suðurlands.

Menntunar og hæfniskröfur:

Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

Stundvísi og góð ástundun

Hreint sakavottorð

Vinsamlegast sendið umsóknir eða fyrirspurnir í netfangið klausturholar@klaustur.is

Matthildur Pálsdóttir, hjúkrunarforstjóri

Upplýsingar í síma 487 4870