Yfirlit frétta

Fundargerð 453. fundar sveitarstjórnar

Fundargerð 453. fundar sveitarstjórnar Skaftárhrepps er nú aðgengileg. Vegna tæknilegra örðugleika er eingöngu streymi af hluta fundarins á youtube

Útilistaverk

Enn uppfærum við fréttina. 11. listaverkið var dottið í hús, en við facebooksnillingarnir vissum bara ekki af því. Kærar þakkir fyrir þátttökuna. Skaftárhreppur á greinilega hugmyndaríka listamenn. Það eru komin tíu listaverk. Sum eru fokin á haf út en það gerir ekkert til því búið er að senda inn mynd í samkeppnina. Það má senda inn mynd af listaverkum til klukkan 15 á sunnudaginn 1. nóv 2020.

Sjúkraþjálfar koma á Klaustur 2. nóv 2020

Vinsamlega pantið tíma hjá sjúkraþjálfunum á netfanginu netsjukrathjalfun@netsjukrathjalfun.is Nánari upplýsingar: https://www.netsjukrathjalfun.is/fraedsla/kirkjubaejarklaustur

Íþróttamiðstöðin lokuð 29. okt frá kl. 13:00

Vegna viðhalds verður íþróttamiðstöðin og þar með sundlaugin á Klaustri lokuð frá 13:00 fimmtudaginn 29. október 2020. Hefðbundin opnun 11:00 - 20:00 á föstudeginum.

Fundur sveitarstjórnar Skaftárhrepps 29. okt 2020 - vefslóð á beint streymi

Fundarboð Sveitarstjórn Skaftárhrepps fundar fimmtudaginn 29. október 2020 Fundur hefst kl. 16:00 í fjarfundi.

Vindorkugarður á Grímsstöðum í Meðallandi

Kynning á drögum að tillögu að matsáætlun. Frestur til að gera athugasemdir er til 16. nóvember 2020. Drög að tillögu að matsáætlun má nálgast á vefsíðu Mannvits (www.mannvit.is)

Bólusetning á Klaustri, pantið tíma

Inflúensubólusetningar hefjast á Klaustri 23. okt 2020. Munið að panta tíma

Laust starf á heilsugæslustöðinni

Móttökuritari og ræstitæknir óskast til afleysinga á heilsugæslustöðina á Kirkjubæjarklaustri. Umsóknarfrestur til 3. nóv 2020

Bílabíó 24. okt 2020, kl. 20

Uppskeru- og þakkarhátíðin í Skaftárhreppi býður þér á þennan viðburð í kvöld laugardaginn 25. okt 2020. Tækifæri sem þú getur ekki látið framhjá þér fara. Sr. Ingimar Helgason segir nokkur orð í upphafi sýningarinnar. Bíóið er á planinu við íþróttahúsið

Nýju bækurnar að detta í hús

Þessa dagana eru nýju bækurnar að koma á Héraðsbókasafnsins. Bókasafnið er opið fyrir almenning á miðvikudögum frá 16:30 - 19:00 og á fimmtudögum frá 11 - 13. Næsta fimmtudag 29. okt verður ekki opið.