Viltu vinna í þvottahúsi og við ræstingu í sumar?

Á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri vantar starfsmann til að leysa af í þvottahúsi og í ræstingum sumarið 2021. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Suðurlands.

  Menntunar og hæfniskröfur:

  Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

  Stundvísi og góð ástundun

  Hreint sakavottorð

Vinsamlegast sendið umsóknir eða fyrirspurnir í netfangið klausturholar@klaustur.is

Matthildur Pálsdóttir, hjúkrunarforstjóri

Upplýsingar í síma 487 4870