Viðurkenningar til íþróttafólks úr Skaftárhreppi sem skaraði fram úr á árinu 2023

 

  • Þann 6. janúar síðastliðinn voru afhentar viðurkenningar til íþróttafólks úr Skaftárhreppi sem skaraði framúr á árinu 2023, afhendingin fór fram á Héraðsbókasafninu á Kirkjubæjarklaustri.
    • Til íþróttamanns ársins voru tilnefnd Daníel Smári Björnsson (frjálsíþróttir), Kristín Lárusdóttir (hestaíþróttir) og Svanhildur Guðbrandsdóttir (hestaíþróttir).
  • Íþrótta- og tómstundanefnd útnefndi Kristínu Lárusdóttur sem íþróttamann Skaftárhrepps 2023.
    • Daníel Smári Björnsson, fékk viðurkenninguna efnilegasti íþróttamaður Skaftárhrepps 2023.
    • Sigurjón Ægir Ólafsson, fékk sérstaka heiðursviðurkenningu fyrir stórglæsilegan árangur í kraftlyftingum á árinu 2023.
  • Að lokinni verðlaunaafhendingu voru afhentir styrkir. Systrakaffi styrkti Ungmennafélagið Ármann um 80.000 krónur sem var ágóðinn af seldum spjöldum á jólabingóinu sem haldið var þann 21. desember sl..
  • Í kjölfarið mættu á staðinn tveir fjörugir jólasveinar sem hafa undanfarin ár verið á ferðinni á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni á Aðfangadag. Að þeirra sögn hafa þeir ekkert að gera við peninga og ákváðu því að styrkja Ungmennafélagið Ármann um 100.000 krónur.

Hér má sjá myndir frá samkomunni: