Veistu um teikninguna af Kjarvalsbrúnni?

Brúin verður á móts við íþróttahúsið á Kirkjubæjarklaustri. Myndina tók Gunnlaugur Róbertsson, starf…
Brúin verður á móts við íþróttahúsið á Kirkjubæjarklaustri. Myndina tók Gunnlaugur Róbertsson, starfsmaður VJP.

Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á vestursvæði rís hratt þessa dagana í Landbrotinu og verður húsið tilbúið áramótin 2022 og 2023. Næst á dagskrá er þá að byggja brú yfir Skaftá, frá gestastofunni að íþróttamiðstöðinn á Kirkjubæjarklaustri.

Sagt er að Kjarval hafi teiknað skyssu sem sýndi brú yfir ána. Kjarval þótti bæjarstæðið á Kirkjubæjarklaustri njóta sín best, séð frá hólunum sunnan við ána og hann skyssaði því upp brúna. Margir segjast hafa séð þessa teikningu en hún finnst hvergi í dag.

Ef þú hefur einhverjar vísbendingar um hvar teikninguna er að finna þætti okkur á skrifstofu Skaftárhrepps vænt um að fá upplýsingar í netfangið kynning@klaustur.is  

Þessar mynd af byggingarframkvæmdunum og brúarstæðinu tók Gunnlaugur Róbertsson í lok mars 2022. 

Byggingarframkvæmdir, gestastofa VJP