Skaftárhreppur fær gefins brú

 

  • Á samkomu sem haldin var þann 29. júní 2023, vegna formlegrar opnunar brúa yfir Núpsvötn og Hverfisfljót, afhenti Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, sveitarfélaginu gjafabréf.
    • Með gjafabréfinu, afhenti Vegagerðin gömlu stálgrindarbrúna yfir Djúpá sem byggð var árið 1952 en var aflögð þegar ný brú yfir ána var byggð sem Hringvegur liggur nú um, til eignar og umráða.
    • Er brúin gefin og afhent sem göngubrú yfir Skaftá til þess að tengja saman stígakerfi þéttbýlisins við Kirkjubæjarklaustur og gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs.
    • Nánar verður gengið frá skilmálum í tengslum við afhendingu brúarinnar í sérstöku samkomulagi á milli aðila.