Laus störf í mötuneyti Skaftárhrepps - Praca w stołówce - Job opportunities in Skaftárhreppur Canteen

Polski

English

 

 

Skaftárhreppur auglýsir laus til umsóknar eftirfarandi störf við mötuneyti Skaftárhrepps sem áætlað er að taki til starfa 1. mars nk. Mötuneytið verður með aðstöðu til matseldar í Kirkjubæjarskóla á Síðu en mun jafnframt vera með starfsmenn í eldhúsi Klausturhóla fyrir framreiðslu og að útbúa létta rétti. Alls eru 4,8 stöðugildi til umsóknar en mögulegt er að skipta því upp í mismunandi starfshlutföll og unnið verður á vöktum. Störfin sem um ræðir eru eftirfarandi;

Matráður 1 stöðugildi

Matráður hefur umsjón með rekstri mötuneytis Skaftárhrepps, sér um vaktaskipulag og þjálfun annarra starfsmanna í gæða- og hollustuháttum. Rekstur mötuneytisins felur í sér, innkaup, matseld (heitan mat), bakstur, frágang og flutning matvæla á milli stofnana. Starf matráðs er unnið virka daga.

Menntun og hæfniskröfur

  • Próf í matreiðslu æskilegt
  • Þjálfun í gæða- og hollustuháttum við framleiðslu og á dreifingu matvæla
  • Mikil reynsla og þekking við matseld og framreiðslu
  • Mikil samskiptahæfni og skipulagshæfileikar
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Færni í íslenskri tungu æskileg

 

Aðstoðar matráður 1 stöðugildi

Aðstoðar við almenn störf í mötuneyti Skaftárhrepps samkvæmt fyrirmælum og tilsögn matráðs og er staðgengill matráðs í hans fjarveru. Starf aðstoðar matráðs er unnið á vöktum. Hefur umsjón með eldhúsi og matseld á helgarvöktum og hátíðisdögum.

Menntun og hæfniskröfur

  • Þjálfun í gæða og hollustuháttum við framleiðslu og dreifingu matvæla
  • Reynsla á þessu sviði æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

 

Starfsmenn mötuneytis 2,8 stöðugildi

Aðstoða við almenn störf í mötuneyti Skaftárhrepps samkvæmt fyrirmælum og tilsögn matráðs. Sjá um framreiðslu, aðstoð við matseld, þrif og skúringar á eldhúsi og matsal Klausturhóla og skólmötuneytis ásamt fl. í samráði við yfirmann.

Menntun og hæfniskröfur

  • Þjálfun í gæða- og hollustuháttum við framleiðslu- og dreifingu matvæla
  • Reynsla á þessu sviði æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

 

Laun eru skv. kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Sandra Brá Jóhannsdóttir sveitarstjóri á netfangið sveitarstjori@klaustur.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar nk. og skulu umsóknir sendast á netfangið sveitarstjori@klaustur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins.