Kvennaverkfall 2023

 

  • Boðað hefur verið til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október nk. undir yfirskriftinni „Kallarðu þetta jafnrétti?“ Viðbúið er að verkfallið hafi áhrif á þjónustu Skaftárhrepps, en þjónusta sem snýr að velferð og öryggi fólks verður tryggð.
    • Konur og kvár hvött til að taka þátt í skipulagðri dagskrá
    • Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks standa fyrir heils dags kvennaverkfalli þann 24. október og konur og kvár sem það geta leggja niður störf. Skaftárhreppur styður af heilindum jafnréttisbaráttu kvenna og kynsegin fólks og tekur undir þau meginsjónarmið kvennaverkfalls að hefðbundin kvennastörf skuli metin að verðleikum og til jafns við störf karla. Þess má geta að Skaftárhreppur hefur innleitt jafnlaunastefnu og fengið jafnlaunavottun og greiðir jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf óháð kyni og öðrum þáttum.
  • Skaftárhreppur mun leita allra leiða til að konur og kvár geti lagt niður störf og tekið þátt í skipulagðri dagskrá yfir daginn og sýna samstöðu í baráttu fyrir launajafnrétti kynjanna. Hluti af starfsemi sveitarfélaga er með þeim hætti að ekki er mögulegt að leggja hana alfarið niður og kappkostað verður að tryggja þjónustu á öllum sviðum svo velferð, öryggi og heilsu fólks verði á engan hátt stofnað í hættu. Hvorki verður litið á fjarvistir kvenna og kvár vegna þátttöku í skipulagðri dagskrá, með samþykki stjórnanda, sem óréttmætar né verður dregið af launum vegna þeirra.
  • Sýnum samstöðu
    • Gera má ráð fyrir skertri þjónustu á starfsstöðvum Skaftárhrepps, íbúar og aðrir gestir eru beðnir um að sýna því skilning. Sýnum samstöðu með konum og kvárum og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að sem flest geti tekið þátt í deginum.