Úboð á byggingu gestastofu VJÞ

Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í landi Hæðargarðs í Landbroti (Ljósm. Arkís)
Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í landi Hæðargarðs í Landbroti (Ljósm. Arkís)

 

Bygging nýrrar Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs komin í útboð

Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, hefur nú opnað fyrir útboð á byggingu nýrrar Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs við Kirkjubæjarklaustur. Gestastofan mun rísa á lóð sunnan Skaftár á móts við sundlaugina á Kirkjubæjarklaustri og mun tengjast við þorpið með göngubrú.

Gestastofan mun veita upplýsingar til ferðamanna um þjóðgarðinn og nágrannasvæði hans, auk þess sem þar verður vönduð fræðslusýning um náttúru og mannlíf svæðisins.

Í útboðinu kemur fram að byggingin er einnar hæðar bygging með kjallara undir hluta hennar og mun hún falla vel að landinu og verður þakið lagt með torfi.

Nú þegar er búið er að grafa fyrir húsinu en sú framkvæmd var boðin út sérstaklega. Það var Digriklettur ehf sem sá um það verk.

 

Lóð gestastofunnar

Upplýsingar til Ríkiskaupa vegna auglýsingar á útboði 21400.

Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, kynnir opið útboð á uppbyggingu nýrrar Gestastofu Vatnajökulsþjóðarðs Kirkjubæjarklaustri. Gestastofan mun hýsa fjölbreytta starfsemi þjóðgarðsins. Byggingin er einna hæðar bygging með kjallara undir hluta hennar. Byggingin er hönnuð þannig að hún falli vel að landinu með gönguleiðum upp á þak byggingar og akstursbraut niður að kjallara húss. Húsið er að hluta til einangrað að utan og jarðvegur lagður að því, forsteyptum steypueiningum og glerveggjakerfi. Þak er viðsnúið með ábræddum þakpappa og lagt með torfi. Ganga skal frá húsinu að utan og innan ásamt lóð full búnu til notanda.

Búið er að grafa fyrir húsi, grafa og fylla í bílastæði og setja upp heildargirðingu fyrir verksvæðið, sem var framkvæmt í sérstöku jarðvinnuútboði. Jarðvinna í þessu verki felst í að fylla í sökkla, fylla að húsi, grafa og endurfylla í lagnaskurði undir og meðfram húsi. Verktaki tekur við þessum girðingum, aksturshliði og göngugirðingu, sér um að viðhalda þeim á verktíma.

Vakin er athygli á því að verkkaupi hyggst fá alþjóðlega umhverfisvottun samkvæmt BREEAM á nýbygginguna en slíkt vottunarferli tekur til margra þátta verktaka á byggingarstað.

 

Reykjavík, 19.03.2021

Framkvæmdasýsla ríkisins

 

 

Byggingarreiturinn er í u.þ.b. tveggja kílómetra fjarlægð frá Kirkjubæjarklaustri. Stærð lóðar er 63.235 m² og byggingarflötur er 765 m².

Helstu magntölur eru:

Fyllingar 7.000 m3

Mótauppsláttur 3.000m2
Steypa 550m3
Stálvirki 5.100kg
Frágangur innveggja, málun o.fl.. 1.200 m2

Frágangur útveggja, málun o.fl.. 870 m2

Frágangur gólfa, flísar, dúkur o.fl.. 700 m2

Frágangur þaks. 730 m2