Styrkir til Skaftárhrepps
30.04.2026
- Sveitarstjóri greindi frá því á 530. fundi sveitarstjórnar sem haldinn var 30. apríl 2026, að Skaftárhreppur hefði fengið 1.139.414 krónur í styrk frá Framkvæmdasjóði Jöfnunarsjóðs til að standa straum að kostnaði við úrbætur í aðgangsmálum fyrir fatlaða við kirkjur sveitarfélagsins.
- Til stendur að kaupa búnað frá Titus, verður réttur búnaður keyptur í samráði við sóknarnefndir síðar á árinu. (Hér má sjá útfærslu)
- Rétt er að geta þess að Skaftárhreppur fékk 5.644.448 krónur í styrk úr Framkvæmdasjóði Jöfnunarsjóðs á árinu 2025 til að laga fyrir framan Klausturveg 4 og hurðir í grunnskóla.
- Jafnframt greindi sveitarstjóri frá því að sveitarfélagið hefði fengið 900.000 krónur í styrk frá Húsafriðunarsjóði vegna húsakönnunar í Skaftártungu. En þetta er annar styrkurinn í húsakönnun sem sveitarfélagið fær, Skaftárhreppur fékk 1.000.000 krónur á árinu 2025 til að gera húsakönnun í Álftaveri. (Hér má sjá úthlutun 2025) (Hér má sjá úthlutun 2026) (Hér má sjá drög af húsakönnun í Álftaveri)