Sigurjón Andrésson tók við starfi sveitarstjóra Skaftárhrepps í ágúst 2026. Áður gegndi hann starfi bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá árinu 2022.
Sigurjón hefur víðtæka reynslu af stjórnun, sveitarstjórnarmálum, stefnumótun, mannauðsmálum og breytingastjórnun. Hann starfaði um árabil sem stjórnandi hjá Sjóvá, meðal annars við markaðs-, kynningar-, öryggis- og forvarnamál. Þá hefur hann verið framkvæmdastjóri markaðsmála hjá BL, ráðgjafi hjá Góðum samskiptum og verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Hann hefur einnig setið í sveitarstjórn Flóahrepps.
Sigurjón er iðnmenntaður í grunninn. Hann er með diploma í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, alþjóðlega gráðu í verkefnastjórnun frá Bandaríkjunum og meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) frá Háskólanum í Reykjavík.
Sigurjón er giftur Margréti Söru Guðjónsdóttur, kennara við Menntaskólann í Reykjavík, og eiga þau tvær uppkomnar dætur, Hrafnhildi Svölu og Heklu Sif.
Í starfi sveitarstjóra leggur Sigurjón áherslu á opið samtal og gott samstarf við íbúa, starfsfólk, sveitarstjórn og atvinnulíf. Hann hvetur íbúa til að hafa samband, koma á framfæri ábendingum eða líta við á skrifstofu sveitarfélagsins.
Sigurjón Andrésson, sveitarstjóri
Sími: 487-4840
Farsími: 781-2201
Netfang: sigurjon@klaustur.is
