Félög

Félagsstarf í Skaftárhreppi er af ýmsum toga. Þar leggur hver íbúi til það sem hann hefur fram að færa. Nokkrar samkomur eru haldnar árlega og er það þá ýmist nefndarmenn á vegum sveitarfélagsins, félagsmenn í félögunum eða áhugafólk sem sér um atburðina. Nokkrar slíkar samkomur má  nefna. Þorrablót er haldið á Klaustri og í félagsheimilinu Tunguseli, sumardeginum fyrsta er fagnað á Klaustri, boðað er til samkomu á Klaustri og í Tunguseli á þjóðhátíðardaginn. Réttir eru í öllum gömlu hreppunum og mæta þar allir sem vettlingi geta valdið. Á haustin hefur svo verið haldin Uppskeru- og þakkarhátíð um mánaðamótin október og nóvember og svo er jólamarkaður í nóvember og jólatréskemmtun fyrir börnin milli jóla og nýjárs. Á gamlárskvöld koma sveitungarnir saman við áramótabrennu á Klaustri og Björgunarsveitin heldur glæsilega flugeldasýningu. Ýmislegt fleira er á döfinni sem fer eftir áhuga og elju íbúa hverju sinni. 

Hér eru talin upp þau félög sem eru starfandi Upplýsingar um félagið á vef eða fb.síðu Er félagið opið nýjum félögum?
Björgunarsveitin Kyndill er með aðstöðu á Klaustri. Björgunarsveitin Kyndill já
Björgunarsveitin Stjarnan er með aðstöðu í Gröf í Skaftártungu Björgunarsveitin Stjarnan já
Kvenfélagið er opið konum í Skaftárhreppi en flestar búa í Landbroti og á Klaustri Kvenfélag Kirkjubæjarhrepps já
Kvenfélagið var stofnað af konum í Hörgslandshreppi en er opið öllum konum Kvenfélagið Hvöt já
Hestamannafélagið Kópur er opið öllum Hestamannafélagið Kópur já
     
Ungmennafélagið stendur fyrir æfingum fyrir börn og fullorðna, úti og inni. Ungmennafélagið Ármann já
Ungm.fél Skafti í Skaftártungu og Álftaveri  Ungmennafélagið Skafti já
Félagið hefur aðstöðu á Klaustri en er opið fólki úr öllum hreppnum Félag eldri borgara já
Skógræktarfélagið Mörk, félagið er hluti af Skógræktarfél. Ísl www.skog.is/skograektarfelagie-moerk/ já
Rauði kross Íslands. Klausturdeild.  www.raudikrossinn.is já
     

Maður er manns gaman!