Tilkynning um ráðningu – Íþróttafulltrúi og yfirmaður íþróttamannvirkja

 

Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur ráðið Stefán Guðjónsson í starf íþróttafulltrúa og yfirmanns íþróttamannvirkja hjá Skaftárhreppi.

Stefán hefur lagt stund á meistaranám í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræðum við Háskólann á Bifröst. Hann er með BS-gráðu í viðskiptafræði og þjálfaramenntun. Stefán býr yfir fjölbreyttri reynslu, m.a. af rekstri og íþróttastarfi bæði sem þjálfari og iðkandi. Hann hefur rekið gistiheimili og auglýsingastofu, starfað sem stundakennari, og þjálfað börn og ungmenni hjá Íþróttafélögunum Ármanni og Þrótti.

Skaftárhreppur býður Stefán velkominn til starfa og mun hann hefja störf 10. september næstkomandi.