Tilkynning frá Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum: Viltu rétta fram hjálparhönd?
27.02.2026
- Viltu rétta fram hjálparhönd?
- Til stendur að ráðast í gagngerar og löngu nauðsynlegar endurbætur á eldhúsinu á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum.
- Eldhúsið er löngu komið til ára sinna og uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru til eldhúsa á sambærilegum stofnunum.
- Við biðlum til allra velunnara Klausturhóla að rétta fram hjálparhönd í formi fjárstuðnings. Frjáls framlög er hægt að leggja inn á Velunnarasjóð Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Klausturhóla.