Skaftárhreppur og Ölfus taka höndum saman um Dag vatnsins

Vatnið mótar landið og lífið í Skaftárhreppi - frá jöklum og ám til heimila og atvinnulífs.
Vatnið mótar landið og lífið í Skaftárhreppi - frá jöklum og ám til heimila og atvinnulífs.

Skaftárhreppur og Sveitarfélagið Ölfus taka höndum saman um að efla þekkingu á vatnsauðlindinni og þeim tækifærum sem felast í vernd hennar og ábyrgri nýtingu. Með samstarfinu verður til vettvangur þar sem þekking úr heimabyggð, rannsóknir og hugmyndir úr atvinnulífinu mætast.


Sveitarfélögin standa, ásamt HYDROS Ölfus að ráðstefnunni Dagur vatnsins 2027 – Auðlind til framtíðar, sem haldin verður í Þorlákshöfn 22. mars 2027, á alþjóðadegi vatnsins. Ölfus Cluster annast verkefnisstjórn og framkvæmd.

Samstarfið var kynnt á fundi sveitarstjórnar Skaftárhrepps 27. október, þar sem sveitarstjórn fagnaði verkefninu samhljóða. Aðkoma sveitarfélagsins felst meðal annars í þátttöku í mótun dagskrár, miðlun staðbundinnar þekkingar og tengingu við aðila á svæðinu.

Nú er kallað eftir hugmyndum að erindum, rannsóknarverkefnum og áhugaverðum fyrirlesurum. Áhugasamir eru hvattir til að senda inn hugmyndir fyrir 15. desember 2026.

Þekking og hugmyndir úr heimabyggð
Á ráðstefnunni verður fjallað um rannsóknir, vernd og sjálfbæra nýtingu vatnsauðlindarinnar og mikilvægi hennar fyrir samfélag og atvinnulíf. Viðfangsefnin verða meðal annars grunnvatnsrannsóknir, vatnsgæði, vöktun, nýsköpun og ábyrg auðlindanýting.

Íbúar, fyrirtæki, nemendur og rannsakendur sem vinna að vatnstengdum verkefnum eða búa yfir þekkingu á þessu sviði eru hvattir til að leggja fram hugmyndir.
Samhliða erindum verður rannsóknartorg þar sem þátttakendur geta kynnt verkefni sín, miðlað þekkingu og myndað ný tengsl. Verkefni á öllum stigum eru velkomin, jafnt hugmyndir í mótun sem rannsóknir og verkefni sem eru lengra komin.

Unglingastig Kirkjubæjarskóla og vatnsauðlindin

Til skoðunar er að nemendur á unglingastigi Kirkjubæjarskóla taki þátt í Degi vatnsins og kynni vatnstengt verkefni á rannsóknartorgi ráðstefnunnar. Skólinn vinnur nú þegar að verkefni í samstarfi við Kötlu jarðvang sem tengist Skaftá og náttúruvísindum og gæti sú vinna fallið vel að viðfangsefni ráðstefnunnar.

Einnig hefur verið rætt um mögulegt samstarf við Grunnskólann í Þorlákshöfn, þar sem nemendur gætu borið saman athuganir frá svæðunum tveimur og miðlað niðurstöðum sínum. Þátttaka og nánari útfærsla hennar eru enn til umræðu.

Hugmyndir berist fyrir 15. desember

Óskað er eftir stuttri lýsingu á hugmynd eða verkefni fyrir 15. desember 2026. Nánari upplýsingar veitir Eva Lind Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Ölfus Cluster, í netfanginu eva.lind@olfus.is eða í síma 845 8847.

Dagskrá ráðstefnunnar og upplýsingar um skráningu verða kynntar síðar.

Nánari upplýsingar
• Ölfus og Skaftárhreppur taka höndum saman um Dag vatnsins 2027 – Ölfus Cluster
• Vatnsauðlindin í brennidepli á Degi vatnsins 2027 – Hamingjuhöfn
• Fundargerð sveitarstjórnar Skaftárhrepps frá 27. október 2026 – umfjöllun, 22. mál