Opinn íbúafundur um fjárhagsáætlun Skaftárhrepps

Skaftárhreppur boðar til opins íbúafundar í félagsheimilinu Kirkjuhvoli miðvikudaginn 2. desember, kl. 19:30-21:00.

Á fundinum verður fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2027-2030 kynnt eins og hún lá fyrir við fyrri umræðu sveitarstjórnar mánudaginn 30. nóvember. Jafnframt verður farið yfir áherslur í framkvæmdaáætlun ársins 2027.

Gert verður ráð fyrir góðum tíma til umræðna og spurninga. Fundurinn er tækifæri fyrir íbúa til að kynna sér áætlanir sveitarfélagsins, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og ræða við sveitarstjórn um áherslur og verkefni fram undan.

Við hvetjum íbúa til að mæta og taka þátt í samtalinu. Sveitarstjórn leggur áherslu á að heyra hugmyndir og ábendingar íbúa áður en fjárhagsáætlunin kemur til síðari umræðu.

Öll velkomin - við hlökkum til að sjá ykkur!

Tengill á viðburðinn á facebook sveitarfélagsins.

Sigurjón Andrésson sveitarstjóri
sigurjon@klaustur.is
Sími: 781-2201