Kirkjubæjarskóli var settur í morgun, mánudaginn 24. ágúst. Alls stunda 58 nemendur nám við skólann í vetur og þar af eru átta nemendur að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Það var því bæði eftirvænting og spenna í loftinu þegar skólastarfið var formlega sett.
Við skólasetninguna var farið yfir helstu atriði komandi skólaárs og að henni lokinni fengu nemendur og foreldrar tækifæri til að hitta kennara og kynna sér starfið fram undan.
Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst þriðjudaginn 25. ágúst og skólaakstur hefst sama dag.
Skaftárhreppur óskar nemendum, starfsfólki og fjölskyldum þeirra góðs og farsæls skólaárs og býður nýja nemendur sérstaklega velkomna í Kirkjubæjarskóla.