Nýtt nemendaráð Kirkjubæjarskóla kosið

Kosið var í nemendaráð Kirkjubæjarskóla fyrir skólaárið 2026–2027 í dag. Framboðin voru glæsileg og stóðu nemendur sig vel við flutning framboðsræða og framsetningu mála sinna. Öllum frambjóðendum er þakkað fyrir þátttökuna.

Nemendaráð Kirkjubæjarskóla skipa:

Kristófer Kári Bjarkason, 10. bekk – formaður
Gabríel Fannar Unason, 10. bekk – ritari
Pétur Yngvi Davíðsson, 9. bekk – gjaldkeri
Kristall Máni Gunnarsson, 9. bekk – meðstjórnandi
Stefanía Guðrún Jónsdóttir, 7. bekk – meðstjórnandi

Við óskum nýju nemendaráði innilega til hamingju með kjörið og velfarnaðar í störfum sínum. Það verður spennandi að fylgjast með starfi ráðsins í vetur.

Á myndinni eru frá vinstri: Stefanía Guðrún Jónsdóttir, Kristall Máni Gunnarsson, Kristófer Kári Bjarkason, Gabríel Fannar Unason og Pétur Yngvi Davíðsson.