Niðurstaða sveitarstjórnar

 

  • Sveitarstjórn Skaftárhrepps kom saman til fundar föstudaginn 29. maí 2026.
    • Meðal annars það sem gerðist á fundinum var að Jóhannes Gissurarson, oddviti lagði fram eftirfarandi bókun:
      • Þá er að renna sitt skeið enn eitt kjörtímabil sveitarstjórnar Skaftárhrepps. Að baki eru viðburðarrík fjögur ár sem hafa einkennst af miklum viðhalds og uppbyggingarverkefnum hvað varðar innviði sveitarfélagsins, ásamt ríkri áherslu á að jafna aðstöðumun, bæta búsetuskilyrði og skerpa á lögbundnum skyldum, jafnt einstaklinga sem atvinnulífs í sveitarfélaginu.

      • Sem oddviti fráfarandi sveitarstjórnar vil ég þakka öllu starfsfólki sveitarfélagsins, sem og öðrum íbúum Skaftárhrepps fyrir góð samskipti liðinna ára.

      • Þá vil ég einnig þakka samstarfsfólki mínu í sveitarstjórn fyrir afar gott samstarf á kjörtímabilinu, sem og fráfarandi sveitarstjóra Einari Kristjáni Jónssyni vil ég þakka sérstaklega fyrir einkar góða og trausta samvinnu liðinna ára og óska honum alls hins besta í hverju því verkefni sem bíður hans í framtíðinni.

      • Ég vil svo að lokum óska samferðafólki mínu næstu fjögur árin, það er nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum Skaftárhrepps velfarnaðar í sínum hlutverkum og minni á að það fylgir vandi vegsemd hverri.

Hér má sjá fundargerð fundarins:

Hér má sjá fundargerð með fundargögnum: