Niðurstaða 528. fundar sveitarstjórnar Skaftárhrepps
27.02.2026
- Sveitarstjórn Skaftárhrepps kom saman til fundar fimmtudaginn 26. febrúar 2026.
- Það helsta sem gert var meðal annars eftirfarandi:
- Sveitarstjórn samþykkti fyrir sitt leiti að endurnýja samstarfssamninga við Björgunarsveitina Kyndil, Björgunarsveitina Stjörnuna og Björgunarsveitina Lífgjöf. Fær hver Björgunarsveit um 650.000 krónur ásamt niðurfellingu fasteignagjalda þar sem það á við.
- Sveitarstjórn samþykkti að fela oddvita og sveitarstjóra að ræða við stjórn Ungmennafélagsins ÁS um áframhaldandi þjónustusamning.
- Sveitarstjórn samþykkti að fela sveitarstjóra að halda kynningarfund fyrir íbúa til að fá frá þeim þeirra sjónarhorn á mögulegar breytingar á Félagsheimilinu Kirkjuhvoli. (Hér má sjá tillögu af breytingum)