Nú um þessar mundir eru bændur og búalið að vera langt komnir með viðhald á girðingum sínum.
Þá er rétt að rifja upp 5.gr. reglugerðar nr. 930/2012, um girðingar meðfram vegum, stendur:
„Viðhaldskostnaður girðinga með stofn- og tengivegum greiðist að jöfnu af Vegagerðinni og landeiganda. Þegar landeigandi hefur lokið árlegu viðhaldi girðinga með stofn- og tengivegum skal hann tilkynna það til sveitarstjórnar og viðkomandi þjónustustöðvar Vegagerðar innar og óska eftir greiðslu á kostnaðarhlutdeild veg haldara. Vegagerðin skal greiða landeiganda sem svarar helmingi af áætluðum viðhaldskostnaði girðinga eins og hann er skilgreindur í 3. mgr. Vegagerðinni er heimilt að synja um greiðslu komi í ljós að viðhaldi hefur ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti að mati Vegagerðarinnar.“