Jólastemning í Kirkjuhvoli

Það verður sannkölluð jólastemning við Félagsheimilið Kirkjuhvol í lok nóvember. Kveikt verður á jólaljósum, efnt til jólamarkaðar og Guðrún Árný heldur jólatónleika ásamt Karlakórnum Kötlu.

Jólaljós og jólamarkaður – 24. nóvember

Kveikt verður á jólaljósunum á jólatrénu við Félagsheimilið Kirkjuhvol þriðjudaginn 24. nóvember kl. 17:00. Jólamarkaður verður haldinn sama dag og verður opinn fram á kvöld. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. 

Einstaklingar og fyrirtæki sem vilja selja varning á jólamarkaðnum eru hvött til að hafa samband við:

 

Jólatónleikar – 26. nóvember

Guðrún Árný heldur jólatónleika í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20:00. Karlakórinn Katla kemur einnig fram og syngur nokkur vel valin lög.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis!
Komum saman og njótum jólastemningarinnar ✨🎄