Jólaljós tendruð og jólamarkaður í Kirkjuhvoli

Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 17:00 verða jólaljósin tendruð á jólatrénu við Kirkjuhvol 🎄
Jólamarkaður verður í félagsheimilinu sama dag frá kl. 16:30 til 21:30.

Sigurjón Andrésson sveitarstjóri ávarpar gesti og krakkarnir í féló verða með kakó og vöfflur til sölu. Heyrst hefur að jólasveinar ætli að koma til byggða, jafnvel með eitthvað góðgæti fyrir yngstu kynslóðina. Jólatónlist verður í loftinu, sykurpúðar grillaðir og Svavar mætir með nikkuna.

Á jólamarkaðnum kennir ýmissa grasa: matvara, jólablóm og greni, kökubasar, handverk, gjafavörur, bækur og fleira.
Kirkjukórinn lítur við kl. 20:00–20:30 og tekur lagið.

🔦 Taktu með þér vasaljós og skelltu þér í göngu í jólaskóginum!

Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman notalega stund í aðdraganda jólanna ✨