Skaftárhreppur vill vekja athygli á að opið er fyrir umsóknir um almenna jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2026. Umsóknarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 1. október 2026.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. október 2026 og umsóknir eru sendar inn í gegnum Afurð. Til að hægt sé að sækja um þarf skýrsla um ræktun ársins 2026 að liggja fyrir í Jörð. Einnig er hægt að sækja um stuðning vegna skemmda af ágangi álfta og gæsa.
Sjá nánar á vef stjórnarráðsins. Umsóknum er skilað inn á vefnum www.afurd.is