Heiti potturinn við sundlaugina hér á Kirkjubæjarklaustri er nú lokaður vegna bilunar í búnaði hans. Unnið hefur verið að því að meta umfang bilunarinnar og þær úrbætur sem þarf að ráðast í til að koma pottinum aftur í notkun. Pantaður hefur verið nýr hreinsibúnaður fyrir pottinn og vaðlaugina en búnaðurinn verður ekki kominn fyrr en í lok nóvember og potturinn því miður lokaður langað til.
Við biðjum gesti sundlaugarinnar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og munum upplýsa um framvindu viðgerðarinnar eftir því sem frekari upplýsingar liggja fyrir.
Opnunartími sundlaugar og líkamsræktar
Sundlaug
Líkamsrækt
Athygli er vakin á því að frá kl. 19:00 til 20:00 er líkamsræktin opin til æfinga en búningsklefar og sundlaug verða lokuð á þeim tíma.