Starfsmaður óskast í 40% starf í heimaþjónustu í Skaftárhreppi – tímabundin afleysing
Ert þú jákvæð/ur, áreiðanleg/ur og finnst þér gott að vinna með fólki?
Við leitum að starfsmanni í 40% tímabundið starf í heimaþjónustu.
Starfstímabil er frá 14. september til 14. október.
Starfið er fjölbreytt og gefandi og felst meðal annars í:
• Almennri aðstoð við heimilishald og þrif
• Félagslegum stuðningi og samveru
• Aðstoð við dagleg verkefni eftir þörfum hvers og eins
Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður í vinnubrögðum, eiga gott með samskipti og sýna þjónustuþegum virðingu og nærgætni.
Umsækjandi þarf að hafa bíl til umráða.
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður K. Steinadóttir í síma 487-8125 eða á netfangið adalheidur@felagsmal.is
Hefur þú áhuga eða þekkir einhvern sem gæti hentað? Endilega hafðu samband eða deildu auglýsingunni.