Fyrsti sveitarstjórnarfundur haustsins

Sveitarstjórn Skaftárhrepps kom saman til fundar fimmtudaginn 27. ágúst. Þetta var jafnframt fyrsti fundur Sigurjóns Andréssonar sem sveitarstjóra og bauð Sveinn Hreiðar Jensson oddviti hann formlega velkominn til starfa fyrir hönd sveitarstjórnar.

Af því tilefni færði sveitarstjórnin Sigurjóni fallega bókargjöf sem hann kann þeim bestu þakkir fyrir og þykir afar vænt um.

Á fundinum voru fjölbreytt mál til umfjöllunar, meðal annars samgöngumál, persónuverndarþjónusta sveitarfélagsins, málefni Kirkjubæjarstofu og skipulagsmál.

Fundargerðina má nálgast hér.