Fornar þjóðleiðir í Skaftárhreppi hafa nú verið snjallvæddar
20.05.2025
- Fornar þjóðleiðir í Skaftárhreppi hafa nú verið snjallvæddar og má nálgast hnitsetta slóða gegnum smáforrit fyrir snjallsíma á vef https://www.wikiloc.com
- Snjallvæðingin var unnin í tengslum við verkefnið „Þjóðleiðir í Skaftárhrepp- – endurheimt“ sem Vera Roth verkefnisstjóri hefur unnið á vegum Kirkjubæjarstofu.
- Í viðmóti Wikiloc er hægt að setja inn í leitarglugga „Skaftárhreppur“ og koma þá upp allar gönguleiðir á svæðinu sem skráðar hafa verið í forritið. Leiðirnar birtast á loftmynd ásamt hnitsettum slóðum og ýmsum öðrum upplýsingum svo sem vegalengdum, hækkun og erfiðleikatigi. Hægt er að ná í þessar upplýsingar án áskriftar.