Uppskeruhátíð Skaftárhrepps 15.–18. október

Undirbúningur fyrir Uppskeruhátíð Skaftárhrepps 2026 er nú í fullum gangi. Hátíðin verður haldin dagana 15.-18. október. Þetta árið verður lögð áhersla á Kirkjubæjarklaustur á laugardeginum 17. október.

Íbúar og fyrirtæki á svæðinu sem hafa áhuga á að taka þátt í hátíðinni eru hvött til að hafa samband við uppskeruhátíðarnefnd. Hægt er að standa fyrir viðburði, taka á móti fólki í garðinum, hafa opið hús eða bjóða upp á eitthvað annað skemmtilegt.

Áhugasöm geta haft samband við:

Pálmar í síma 774-3959 eða á netfangið palmar.atli@gmail.com 
Fanndísi í síma 774-6484 eða á netfangið fanndis@klaustur.is