Tilkynning frá Whitehay Capital
05.03.2026
- Eftirfarandi tilkynning barst frá Whitehay Capital
- Whitehay Capital, hefur unnið að uppbyggingu á fiskeldi á landi við Kirkjubæjarklaustur síðustu mánuði.
- Hefur félagið fengið úthlutað land á Stjórnarsandi, sem er í eigu Skaftárhrepps og er um 9 hektarar af stærð. Whitehay Capital, hefur borað þar fyrir köldu vatni og gáfu þær boranir afar góða niðurstöðu. Félagið er núna að vinna að hönnun og umhverfismat fyrir verkefnið sem yrði unnið í þrem áföngum eða frá 1.500 tonnum upp í 5.000 tonn. Mun þessi vinna liggja fyrir á næstu vikum.
- Þar sem vatn og land er nógu stórt á Stjórnarsandi hefur Whitehay capital, ákveðið að selja landareign sína við Tungu og byggja alla starfsemina upp á einum stað.
- Kormakur Arthursson, stjórnandi sagði eftirfarandi: Afar gott samstarf hefur verið við sveitarfélagið við þessa uppbyggingu og vonandi helst það áfram. Við erum stolt af þessu samstarfi og hlökkum til að halda áfram að vinna saman að uppbyggingu á Klaustri.
- Hér má sjá frekari upplýsingar um verkefnið