Deildarstjóri félagslegrar heimaþjónustu

Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða deildastjóra félagslegarar heimaþjónustu. Starfshlutafall er 80 til 100 %. Starfsfólk félags- og skólaþjónustu starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Íbúar eru rétt rúmlega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf deildarstjóra félagslegrar heimaþjónustu.
Um er að ræða 80–100% starf þar sem viðkomandi hefur yfirumsjón með skipulagningu og framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu og tilsjónar. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, góða þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og jákvæð samskipti.

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • Umsjón með skipulagningu og framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu.
  • Mat á þjónustuþörf einstaklinga og eftirfylgd með þjónustu.
  • Verkstjórn og dagleg stjórnun starfsfólks.
  • Gerð vinnuáætlana, skipulagning afleysinga og sumarleyfa.
  • Ráðningar, móttaka og fræðsla nýrra starfsmanna.
  • Samskipti og samstarf við þjónustunotendur, aðstandendur og aðrar stofnanir.
  • Samstarf við félagsráðgjafa og aðra starfsmenn félagsþjónustunnar.
  • Þátttaka í þróun og stefnumótun þjónustunnar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Félagsráðgjöf og/eða önnur háskóla- eða fagmenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af stjórnun og/eða skipulagningu þjónustu er kostur.
  • Reynsla af starfi með öldruðum og/eða einstaklingum með stuðningsþarfir er kostur.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
  • Fagleg vinnubrögð, áreiðanleiki og sveigjanleiki.
  • Góð almenn tölvukunnátta.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og krefjandi starf.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og uppbyggingu þjónustunnar.
  • Samstarf við metnaðarfullan hóp starfsfólks.
  • Góðan starfsanda og tækifæri til faglegs þroska.

Umsóknir

Umsókn ásamt ferilskrá og upplýsingum um menntun og fyrri störf skal berast svava@felagsmal.is, en umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2026. Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Davíðsdóttir framkvæmdarstjóri Félags- og skólaþjónustu með tölvupósti á svava@felagsmal.is.