Bókaðu stund fyrir bók – lestrarhvatning til þjóðarinnar!
06.03.2026
- Bókaðu stund fyrir bók – lestrarhvatning til þjóðarinnar!
- Miðstöð íslenskra bókmennta stendur nú fyrir lestrarhvatningu undir yfirskriftinni Bókaðu stund fyrir bók, sem mun standa yfir út árið.
- Markmið hvatningarinnar er að hvetja fullorðið fólk til að gefa sér tíma til lesturs og gera bóklestur að raunhæfum hluta af daglegu lífi. Áhersla er lögð á jákvæða og aðgengilega nálgun þar sem hver og einn finnur sinn takt.
- Á vefnum bokastund.is verður hægt að finna upplýsingar um hvatninguna og fjölbreyttar hugmyndir að því hvernig bæta má bóklestri inn í daglegt líf. Þar verður hægt að nálgast ýmislegt kynningarefni, plaköt, lestrarráð, markmiðablöð og annað skemmtilegt.
- Verkefnið er einnig kjörið tækifæri til að standa að viðburðum tengdum lestri fullorðins fólks, stofna bókaklúbba og gera fólki auðveldara að bóka sér stund fyrir bók í amstri dagsins. Við viljum standa að lestrarbylgju um allt land í öllum kimum þjóðfélagsins. Verkefnið verður virkt á samfélagsmiðlum undir yfirskriftinni Bókastund.
- Af hverju bók?
- Bókin er þögull og þolinmóður vinur. Hún blindar ekki, bilar ekki, reynir ekki að freista þín með öðrum inngripum og það þarf ekki að hlaða hana – hún hleður þig. Í bók er vandlega hugsaður texti, mótvægi við hraðfærslur dagsins. Þá má nefna að bókin safnar ekki um þig upplýsingum; í raun veit enginn hvar þú ert eða hvað þú ert að lesa. Þess vegna er bóklestur á okkar tímum kannski einfaldasta andófið.
- Bókin krefst þess ekki að við leggjum niður aðrar tómstundir – hún býður einfaldlega upp á nærandi hlé þegar þér hentar, hvort sem er í skamma stund eða heila kvöldstund. Slík stund er um leið samtal við heiminn.