Ársreikningur 2025

 

  • Á 531. fundi sveitarstjórnar Skaftárhrepps kynnti, Haraldur Örn Reynisson endurskoðandi frá KPMG, helstu niðurstöður Ársreiknings Skaftárhrepps fyrir árið 2025 sem lagður var fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Ársreikningurinn sýnir afar góða stöðu sveitarfélagsins þrátt fyrir miklar framkvæmdir.
    • Rekstrarniðurstaða:
      • Rekstrarniðurstaða A og B hluta, fyrir afskriftir og fjármagnsliði, við fyrri umræðu var jákvæð um 96 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða A og B hluta, eftir afskriftir og fjármagnsliði, við fyrri umræðu var jákvæð um 15 milljónir króna, samkvæmt rekstrarreikningi.
    • Rekstrartekjur:
      • Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.328 milljónum króna fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.293 milljónum króna.
    • Veltufé frá rekstri:
      • Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri samstæðunnar um 86,5 milljónum króna. 
    • Fjárfestingar:
      • Fjárfestingar ársins námu um 169 milljónum króna, í A og B hluta, en þar af námu fjárfestingar í A hluta 163 milljónum króna
    • Skuldaviðmið:
      • Skuldaviðmið A og B hluta, sveitarfélaga á Íslandi mega ekki fara yfir 150% skv. reglugerð nr. 502/2012. Skuldaviðmið Skaftárhrepps er 40%. 
    • Framkvæmdir:
      • Skaftárhreppur hefur fjárfest í varanlegum rekstrarfjármunum (eignfært) um 430 milljónum króna á árunum 2023, 2024 og 2025. Þrátt fyrir miklar framkvæmdir á liðnum árum stendur sveitarfélgið vel og er ekki með nema um 40% í skuldaviðmiði.
      • Helstu framkvæmdir á árunum 2023, 2024 og 2025 hafa verið:
      • Framkvæmdir við grunnskóla um 212 milljónir króna. (Skólalóð og bókasafn inn í þessari tölu)
      • Framkvæmdir við leikskóla um 21 milljónir króna. (Nýr og gamall) 
      • Framkvæmdir við Íþróttamiðstöð um 28 milljónir króna. (Sundlaug 16 milljónir króna, íþróttahús 12 milljónir króna)
      • Framkvæmdir við Félagsheimilið Kirkjuhvoll um 38 milljónir króna.
      • Framkvæmdir við Klausturhóla um 4,8 milljónir króna. (Umfram það sem kemur frá Framkvæmdasjóði aldraðra. Viðhald gjaldfært)
      • Framkvæmdir við Gámavöll um 8 milljónir króna.
      • Fjárfestingar í áhöldum og tækjum um 81 milljón krónur. (Slökkvibifreið, þjónustubifreið, liðléttingur, götusópur og fleira)

Sveitarstjórn Skaftárhrepps er stolt að skila af sér góðum ársreikningi nú í lok þessa kjörtímabils og ber niðurstaðan vitni um að efnahagurinn er traustur. Jafnframt fagnar sveitarstjórn góðri rekstrarafkomu ársins 2025 og þakkar starfsfólki Skaftárhrepps fyrir þeirra framlag og eftirfylgni með fjárhagsáætlun sem skilar sér í góðum rekstri í starfsemi sveitarfélagsins. Ennfremur þakkar sveitarstjórn öllum verktökum sem öðrum fyrir sína þjónustu á árinu  2025.