Ríkisstjórn Íslands fundaði með fulltrúum Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt fulltrúum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) á Höfn í Hornafirði fimmtudaginn 13. ágúst sl.
Á fundinum var farið yfir helstu áherslumál og áskoranir svæðisins til næstu ára. Fundurinn var markviss og gafst gott tækifæri til að ræða milliliðalaust við ríkisstjórnina um stöðu og framtíð Suðausturlands.
Fulltrúar Skaftárhrepps afhentu ríkisstjórninni minnisblað þar sem dregin eru saman helstu mál sem sveitarfélagið telur mikilvægt að unnið verði áfram að í samstarfi ríkis og sveitarfélags.
Megináherslan er að fjármögnun, ríkisþjónusta og uppbygging innviða taki mið af raunverulegum aðstæðum í landstóru og dreifbýlu sveitarfélagi þar sem þörfin fyrir þjónustu ræðst ekki eingöngu af fjölda skráðra íbúa. Mikill fjöldi ferðamanna, langar vegalengdir og náttúruvá skapa meðal annars aukið álag á samgöngur, heilbrigðis- og viðbragðsþjónustu og fjarskipti.
Meðal mála sem rædd voru voru fjárhagslegt burðarþol og endurnýjun grunninnviða, uppbygging leikskóla og húsnæðis, heilbrigðis- og viðbragðsþjónusta, fjarskipti og öryggissamband, Hringvegurinn og vetrarþjónusta, náttúruvá og áframhaldandi vinna við jarðhitaleit. Einnig var rætt um einstök verkefni á borð við Leirá og Skálm, Grenlæk, Fossála–Breiðbalakvísl og framtíð Klausturhóla.
Það er verðmætt fyrir sveitarfélögin á Suðausturlandi að fá tækifæri til að hitta ríkisstjórnina með þessum hætti, augliti til auglitis, ræða aðstæður svæðisins og koma áherslum sínum milliliðalaust á framfæri.
Ný sveitarstjórn Skaftárhrepps mun leggja ríka áherslu á öfluga og markvissa hagsmunagæslu á næstu misserum og fylgja þessum og öðrum mikilvægum málum sveitarfélagsins og Suðausturlands eftir gagnvart stjórnvöldum.