Á dögunum barst Kirkjubæjarskóla falleg gjöf frá eldri nemendum sem útskrifuðust 1973- 1975 frá Kirkjubæjarskóla. Þetta er afar fallegur bekkur sem staðsettur er gegnt skólanum og þegar setið er á honum og hvílt um stund er hægt að leiða hugann að skólagöngunni og því að njóta lífsins á Skólabekk. Við þökkum kærlega þessa fallegu gjöf og vonum að sem flestir njóti.
