Yfirlit frétta

Hestaþing og firmakeppni Kóps 23. og 24. júlí 2021

Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps verður haldin á Sólvöllum í Landbroti föstudagskvöldið 23.júlí nk. kl. 19:00. Hestaþing Hestamannafélagsins Kóps verður haldið 24.júlí nk. á Sólvöllum í Landbroti.

Fundur Sveitarstjórnar Skaftárhrepps 15. júlí 2021 - beint streymi vefslóð

Fundarboð: 464. fundur Sveitarstjórnar Skaftárhrepps verður haldinn í fundaraðstöðu Kirkjubæjarstofu þekkingarseturs Klausturvegi 4, 2. hæð fimmtudaginn 15. júlí 2021, kl. 15:00.

Strandblakvöllur á Kirkjubæjarklaustri

Enn bætist við skemmtilegheitin á Klaustri. Fyrir utan Íþróttamiðstöðina er kominn strandblakvöllur sem er opinn öllum sem vilja.

Skipulagslýsing fyrir Suðurhálendið - umsagnarfrestur til 15. ágúst nk.

Sumarlokun skrifstofu Skaftárhrepps

Lokað verður frá 19. júlí - 9 ágúst 2021 á Skrifstofu Skaftárhrepps

Sameining sveitarfélaganna

Í Kjarnanum 1. júlí 2021 er fjallað ítarlega um sameiningu sveitarfélagnna fimm sem eru í V-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Kosið verður um sameiningu samhliða alþingiskosningum haustið 2021.

Íþróttamaður USVS æfir fyrir heimsmeistaramót

Svanhildur Guðbrandsdóttir var valin Íþróttamaður ársins hjá Ungmennasambandi Vestur-Skaftafellssýslu árið 2020. Svanhildur hefur stundað hestamennsku frá fæðingu. Henni hefur gengið vel og var með hæstu einkunn yfir landið í knapamerkjunum 2019 og var valin efnilegasti íþróttamaður USVS árið 2012 og hún hefur staðið undir þeim titli. Nánari fréttir af ársþingi USVS má sjá á USVS.is

Rafmagnsævintýrið -opnunartími

Opið 26. júní 2021 kl 13 -16, Laugardaginn 3. júlí 13 -18, Sunnudaginn 4. júlí 13 -16, Laugardaginn 17. júlí 13 - 18, Sunnudaginn 18. júlí 13 - 16 Opnunartími um helgina á sýningunni Rafmagnsævintýrið verður sem hér segir: Föstudaginn 18. júní 13 -18, laugardaginn 19. júní 13 - 18, sunnudaginn 20 júní 13 - 16. Myndirnar eru til sölu. Sýningin er í Gistihúsinu (þar sem Kirkjubæjarstofa var) beint á móti Systrafossi á Kirkjubæjarklaustri. Allir velkomnir

Myndir frá 17. júní 2021

Íbúar í Skaftárhreppi komu saman á Kirkjubæjarklaustri og í Tunguseli til að halda þjóðhátíðardaginn hátíðlegan

Breyting - 17. júní 2021 á Klaustri

Breyting vegna veðurs: Hátíðin hefst með skrúðgöngu frá Félagsheimilinu klukkan tvö. Klukkan 15:00 er kaffi í Kirkjuhvoli. Því miður fellur rennibrautin niður . Frítt í sund. The Celebration begins at Skaftárstofa/félagsheimilinu at 14:00 and goes to the Sportshall, then there is coffee and cakes in Kirkjuhvoli/Skaftárstofa at 15. It is free admission to the Swimming Pool this day.