05.11.2021
Dagana 9. og 10. nóvember mun biskups Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, heimsækja
prestakallið og meðal annars skoða allar kirkjur og kapellur sem við höfum.
Þriðjudagskvöldið, 9. nóvember, klukkan 20:00 verður messa í Prestsbakkakirkju að þessu
tilefni en þar mun biskup prédika og blessa söfnuðinn.
27.10.2021
Smáframleiðendur matvæla sameinast í MATSJÁNNI
26.10.2021
Deiliskipulagsbreyting – Íbúðabyggð við Læknisbústað, Kirkjubæjarklaustri. Gerð er breyting á deiliskipulagi Læknisbústaðar sem samþykkt var 19.12.2019 og felur breytingin í sér að breyta tveimur einbýlishúsalóðum í tvær fjölbýlishúsalóðir og 3ja íbúða raðhúsalóð í 4ja íbúða raðhúsalóð. Skortur er á minna húsnæði á Kirkjubæjarklaustri sbr. húsnæðisáætlun Skaftárhrepps. Að öðru leyti gilda skilmálar úr gildandi skipulagi.
26.10.2021
Kirkjubæjarskóli á Síðu var vígður 30. október 1971 og fagnar því fimmtíu ára afmæli.
22.10.2021
Sunnudaginn 24. okt kl. 11:00 verður fjölskylduguðsþjónusta í Minningarkapellunni.
21.10.2021
Byggðastofnun veitir langtímalán til reksturs fyrirtækja. Byggðastofnun getur í raun lánað í öll þau verkefni þar sem verið er að búa til atvinnu, hvort sem það er skartgripagerð eins aðila eða hótelrekstur.
18.10.2021
12. 13. og 14. nóvember verður Uppskeru- og þakkarhátíð 2021 í Skaftárhreppi. Að þessu sinni munum við heimsækja fólk í Skaftártungu og Álftaveri. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Takið dagana frá!
Menningarmálanefnd Skaftárhrepps
15.10.2021
Heiti potturinn og vaðlaugin verða lokuð vegna viðgerða mánudag, þriðjudag og miðvikudag í næstu viku, dagana 18. - 20. október 2021
15.10.2021
Fyrsti steypubíllinn kominn með steypu í grunninn fyrir Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs við Kirkjubæjarklaustur.