Söfnun á rúlluplasti

Rúlluplasti verður safnað saman í sveitarfélaginu fimmtudaginn 6. og föstudaginn 7. ágúst n.k.

Nauðsynlegt er að bændur sem vilja láta taka rúlluplast hjá sér, tilkynni það til skrifstofu Skaftárhrepps í síma 487 4840 eða með tölvupósti á klaustur@klaustur.is fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 4. ágúst n.k.

Rúlluplastið verður að vera hreint og án spotta og nets.

Rúlluplast verður einungis sótt til þeirra sem þess óska.

Nánari upplýsingar
Eygló Kristjánsdóttir
487 4840 / 847 6655