Deiliskipulag Jónstúns á Kirkjubæjarklaustri – tillaga í auglýsingu

Sveitarstjórn Skaftárhrepps samþykkti þann 14. júlí 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Jónstúns á Kirkjubæjarklaustri, verslunar- og þjónustureits VÞ3, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan og öll gögn málsins eru aðgengileg í Skipulagsgátt, mál nr. 939/2026: Skoða tillöguna í Skipulagsgátt – mál nr. 939/2026

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 24. september 2026.

Athugasemdum skal skila skriflega í gegnum Skipulagsgátt. Einnig er hægt að senda athugasemdir eða fyrirspurnir til skipulagsfulltrúa Skaftárhrepps á skipulag@klaustur.is.