Álftaversgígar

Above the inhabitated area Álftaver are extensive clusters of pseudocraters, which have acted as a barrier against the glacial floods. Álftaversgígar are a protected natural monument. Álftaver is halfway between Vík í Mýrdalur and Kirkjubæjarklaustur 


Álftaver er víðáttumikil sveit sem afmarkast af Kúðafljóti að austan og Blautukvísl að vestan. Sveitin dregur nafn sitt af gróðursælu votlendi sem einkennir svæðið. Ofan og vestan við byggðina eru miklar þyrpingar gervigíga sem kallast Álftaversgígar. Álftaversgígar hafa verndað byggðina að verulegu leyti fyrir jökulhlaupum samfara Kötlugosum. Álftaversgígar eru friðlýst náttúruvætti.