Skaftárstofa - Upplýsingamiðstöð ferðamanna

Upplýsingamiðstöð ferðamanna er staðsett í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri.
Upplýsingamiðstöðin er rekin af Vatnajökulsþjóðgarði í samstarfi við Skaftárhrepp, Kirkjubæjarstofu, Frið og frumkrafta og Skaftárelda ehf.

Vetrar afgreiðslutími Skaftárstofu
9:00 til 14:00 virka daga

Skaftárstofa
Klausturvegi 10
880 Kirkjubæjarklaustur
Sími: 487 4620
klaustur@vjp.is
Kort

Í Skaftárstofu er stór sýningar- og fundarsalur og góð aðstaða til sýningarhalds.

Sýningar:
Fræðslusýning frá Vatnajökulsþjóðgarði og Kötlu Jarðvangi.
Margmiðlunarsýningin Sagan í sandinum - klaustrið á Kirkjubæ
Náttúrusafn frá Skaftá, Grímsvatnagosinu 2011 og Eyjafjallajökulsgosinu 2010.

Stuttmyndir:
Eldmessa - Stutt heimildarmynd um Skaftárelda 1783 - 1784 og afleiðingar þess.
Eldgosið í Grímsvötnum 2011.
Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Verslun.
Bækur, kort og minjagripir eru til sölu í þjónustumiðstöðinni.

Bókunarþjónusta.
Starfsmenn Skaftárstofu aðstoða þig við að bóka gistingu og aðra þjónustu þér að kostnaðarlausu.

Frítt internet og hægt er að kaupa kaffi og te og setjast í setustofuna.