Plokk og pylsur 26. apríl 2024

 

  • Föstudaginn 26. apríl höldum við plokkdag á Klaustri og nágrenni. Þann dag hvetjum við alla til að fara út að plokka rusl. Hægt verður að fá afhenta poka hjá Sigurði Arnfinni á föstudagsmorgun og mun hann vera með kerru við Félagsheimilið Kirkjuhvol frá klukkan 11:00 til 14:00 þar sem ungir sem aldnir geta afhent afrakstur plokksins.
  • Við Félagsheimilið Kirkjuhvol verður standandi pylsuveisla, frá 11:30 til 13:00, í boði sveitarfélagsins.

   

Gleðilegt sumar!   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd Skaftárhrepps.