Kirkjubæjarklaustur

Kirkjubæjarklaustur was known in olden times as “Kirkjubær” (Church Farm) and was an important farming estate. Kirkjubæjarklaustur has developed into a village, the only centre of population in the district, with about 120 inhabitants and is also known as Klaustur. 


Kirkjubæjarklaustur er kauptúnið í Skaftárhreppi. Þar búa um 180 manns. Á staðnum er Íþróttamiðstöð , sundlaug, grunnskóli og leikskóli. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, verslun, bensínstöð, veitingahús og fjölbreytt ferðaþjónusta. Þjóðvegur no 1 liggur i jaðri staðarins, liggja leiðir til allra átta frá Kirkjubæjraklaustri á ótal marga vinsæla ferðamannastaði, t.d. Jökulsárlón, Ingólfshöfða, Skaftafell, Lakagíga, Eldgjá, Landmannalauga, Hjörleifshöfða , Reynisfjöru og Dyrhólaey.

Kirkjubær á Síðu hét staðurinn stórbýli áður fyrr, talið er að Papar hafi búið hér áður en landnám norðræna manna hófst.Hér bjó Ketill hinn fílfski landnámsmaður, eftir hann reyndi heiðinn maður Hildir Eysteindsson úr Meðallandi að færa bú sitt að kirkjubæ , féll hann örendur niður við túngarðinn og liggur þar í Hildishaugi klettahól sem er skammt austan Klausturs en sagt er að aðeins kristnir menn geti búið á Kirkjubæ , hér var stofnað Nunnuklaustur af Benidiktusarreglu, var starfrækt á Kirkjbæ frá 1168 allt fram yfir siðaskypti til ársins 1554.Nokkrir staðir eru kenndir við tíð nunnana hér, má þar nefna Kirkjubæjarkaustur, Systrastapi, Systrafoss, Systravatn og Sönghellir.

Kirkjubæjarklaustur á sér langa og ríka sögu. Talið er að Papar hafi búið hér áður en landnám hófst. Hér var nunnuklaustur og eru margir merkir sögustaðir tengdir því. Þar bera að nefna systrafoss, systrastapa og systravatn.

Nunnuklaustrið á Kirkjubæ var ekki eina klaustrið sem var í hreppnum sem kallast nú Skaftárhreppur. Á þykkvabæjarklaustri í Álftaveri var munkaklaustur. Töluverður samgangur var þarna á milli og er til hellir sem kallast Sönghellir og er milli systrastapa og systravatns. Talið er að systurnar í klaustrinu á Kirkjubæ hafi staðið vestan við hellinn en munkarnir austanmegin og sungust á. Söngurinn bergmálaði í hellinum og heitir hann því Sönghellir