Kynning á vinnslutillögu að nýju Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2019-2031

Blágil - samspil ljóss og lita, ljúfur staður (Ljósmynd ÓJ)
Blágil - samspil ljóss og lita, ljúfur staður (Ljósmynd ÓJ)

Í samræmi við 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt vinnslutillaga að nýju aðalskipulagi Skaftárhrepps 2019-2031.

Vinnslugögnin eru hér á heimasíðu sveitarfélagsins undir skipulags- og byggingarmál en gögnin samanstanda af greinargerð og umhverfismatsskýrslu , sveitarfélagsuppdrætti og þéttbýlisuppdrætti.

Þeir sem vilja koma með ábendingar eða athugasemdir við vinnslugögn/vinnslutillögu geta skilað þeim á netfangið bygg@klaustur.is  fyrir lok dags 5. janúar 2022.

Endanleg tillaga verður kynnt almenningi með formlegum hætti og auglýst í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 í upphafi nýs árs þar sem öllum gefst aftur tækifæri á að koma með athugasemdir.

F.h. Skaftárhrepps, Ólafur Elvar Júlíusson, skipulags- og byggingarfulltrúi