Vísitasía biskups Íslands

Messað verður í Prestsbakkakirkju þriðjudaginn 9. nóvember 2021 (Ljósm. LM)
Messað verður í Prestsbakkakirkju þriðjudaginn 9. nóvember 2021 (Ljósm. LM)

VÍSITASÍA BISKUPS ÍSLANDS

Dagana 9. og 10. nóvember mun biskups Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, heimsækja
prestakallið og meðal annars skoða allar kirkjur og kapellur sem við höfum.


Þriðjudagskvöldið, 9. nóvember, klukkan 20:00 verður messa í Prestsbakkakirkju að þessu
tilefni en þar mun biskup prédika og blessa söfnuðinn. Fyrirhugaðri messu í
Þykkvabæjarklausturskirkju verður því frestað um sinn.


Á meðan biskup heimsækir kirkjurnar er öllum frjálst að koma og taka þátt í stuttri helgistund
í hverri kirkju fyrir sig. Heimsóknirnar verða eins nálægt þessum tímum og hægt er.


Þriðjudagurinn 9. nóvember.

kl. 13:00 Þykkvabæjarklausturskirkja

kl. 15:00 Grafarkirkja

kl. 20:00 Messa í Prestsbakkakirkju


Miðvikudagurinn 10. nóvember.

kl. 08:30 Núpsstaðarkapella

kl. 09:20 Kálfafellskirkja

kl. 13:00 Minningarkapellan

kl. 16:00 Langholtskirkja