Móttaka barna á einkaheimili

Barnavernd Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu í samstarfi við Barnavernd Árborgar auglýsa eftir umsóknum frá fjölskyldum og/eða einstaklingum sem eru tilbúin til að veita börnum móttöku á einkaheimilum.

 

Í 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 kemur fram að barnaverndarnefndir skulu hafa tiltæk úrræði til að veita börnum mótttöku í bráðatilvikum, til að tryggja öryggi þeirra.

Hlutverk neyðarheimilis er að taka á móti barni/börnum með stuttum fyrirvara til skemmri tíma eða í allt að þrjá mánuði. Leitað er eftir fólki sem hefur áhuga á velferð barna og er tilbúið að taka á móti þeim með stuttum fyrirvara og mæta breytilegum þörfum þeirra. Mikilvægt er að skapa þeim öruggar aðstæður með hlýju og nærgætni. Um er að ræða gefandi starf þar sem fjölskyldur fá tækifæri til að hlúa að börnum sem upplifað hafa erfiðar heimilisaðstæður.

 

Barnaverndarstofa veitir leyfi að undangenginni úttekt á heimilishögum af hálfu barnaverndarnefndar í viðkomandi umdæmi. Reynsla og þekking af starfi með börnum er æskileg. Aldurstakmark umsækjenda er 25 ára.

 

Áhugsamir sendi ferilskrá ásamt kynningarbréf til Svövu Davíðsdóttur, félagsmálastjóra Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu á netfangið svava@felagsmal.is. eða til Önnu Rutar Tryggvadóttur, teymisstjóra barnaverndar Árborgar á netfangið annarut@arborg.is Sé frekari upplýsinga óskað eru þær veittar á framangreindum netföngum. Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2022.