Laus er til umsóknar staða slökkviliðsstjóra

Laus er til umsóknar staða slökkviliðsstjóra í Skaftárhreppi. Um er að ræða 30% starfshlutfall. Leitað er að drífandi einstaklingi með mikið frumkvæði.

Starfssvið

  • Yfirumsjón með rekstri og viðhaldi tækja og búnaðar slökkviliðs
  • Eldvarnareftirlit
  • Umsjón með útkallslista slökkviliðs

Menntunar- og hæfniskröfur

Slökkviliðsstjóri þarf að uppfylla 15. og 16. gr laga um brunavarnir nr. 75/2000

Meirapróf

Háskólapróf er kostur

Reynsla af mannaforráðum kostur

Lipurð í mannlegum samskiptum

Laun eru greidd skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Umsóknarfrestur er til og með 3. sept 2021. Nánari upplýsingar og umsóknir berist á sveitarstjori@klaustur.is