Kynning á vindorkugarði á Grímsstöðum í Meðallandi

Vegna vinnu við tillögu að matsáætlun vindorkugarðs á Grímsstöðum í Meðallandi verður haldinn kynningarfundur fyrir íbúa Skaftárhrepps á Hótel Klaustri, þriðjudaginn 22. júní kl. 20:00. Fjallað verður um stöðu undirbúnings og mat á umhverfisáhrifum verkefnisins. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Allir velkomnir.